Síðustu dagar.

Það hefur eiginlega verðið nóg að gera undanfarið ! Geithafurinn kom í endaðan júní og var í tvær vikur (fór í gær) pabbi hans kom í 6 daga og á meðan hann var hér var ekki stoppað þar sem hann vildi vera á ferðinni allan daginn. Ég reyndar þurfti náttúrlega að vinna svona hér og þar og þá fór ég ekki með en annars fór ég með þeim í ferðirnar eins og til dæmis Gullfoss, Geysir og Þingvelli, Vík og Dyrhólaey, svona til að nefna eitthvað. Svo var náttúrlega brúðkaup í Selvoginum hjá Steina og Ástu sem við fórum í og það var bara gaman í frábæru veðri.Smile Fékk lánað hús og bíl meðan kallarnir voru hjá mér sem reddaði þessu alveg !! Var að flytja aftur heim í gær og er þar með komin í netsamband aftur. Smile Núna er semsagt allt að komast í rútínu aftur vinna og sofa, er reyndar að fara á aðra vakt eftir helgi þannig að núna verður þetta reglulegra hjá mér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband