19.5.2008 | 15:04
Leti..
Eiginlega ekki hægt að segja annað en það sé leti í gangi. Ég vann í tvo daga og svo er ég í þriggja daga fríi sem er reyndar bara ljúft sko. En á morgun verð ég víst aftur að drösla mér á fætur rúmlega sex. Annars leggst sumarið bara nokkuð vel í mig þótt það hafi orðið ansi miklar breytingar á vinnustaðnum og svo eru hinar sumarafleysinga manneskjurnar ekki byrjaðar þannig að ég veit í raun ekkert með hverjum ég verð að vinna í sumar.
Annars er ekkert að gerast ég er loksins búin að taka upp úr töskunni ...sko tók ekki nema viku. Er ekki að nenna neinu þessa dagana.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.