16.5.2008 | 18:02
...........
Hef ekki mikið að segja þessa dagana ! Er byrjuð að vinna og þetta verður eflaust ágætt eins og venjulega. Er reyndar ekki búin að hitta hinar sem eru að leysa af í sumar en þetta hlýtur að reddast.
Fór í smá göngu eftir vinnu í rigningarúða og það var reglulega hressandi. Hitti líka slatta af fólki sem ég hef ekki séð lengi, rakst á gamlan nágranna sem ég hef ekki hitt í ábyggilega 20 ár og svo er ég búin að vera að hitta gamalt samstarfsfólk á förnum vegi.
En ég enda þetta á afmælisóskum til hans litla bróður sem er víst 25 ára í dag. Skelfing er maður orðin gamall...fyrr í mánuðinum voru liðin 23 ár síðan ég var fermd.
Athugasemdir
Hvað segirðu? Eru 23 ár síðan við fermdust? Það getur bara ekki verið Mér finnst ekki vera nema svona 10-15 ár síðan
Jóna (IP-tala skráð) 16.5.2008 kl. 21:35
Hvar ertu að vinna þetta árið ?
Sigrún (IP-tala skráð) 16.5.2008 kl. 23:02
Ég er bara á sama stað og venjulega. Engin tibreyting í þessu hjá mér.
Ólöf , 17.5.2008 kl. 14:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.