..........

Er hálf vindlaus enda lifi ég á ofnæmislyfjum þessa dagana og þau fara þannig í mig að ég get eiginlega sofið bara og sofið ! Það er samt skárra en að vera með rennandi augu og nef og að hnerra 100 sinnum á dag.Woundering

Helgin hefur bara verið róleg reyndar alveg frábært veður í dag hefur ekki verið gert mikið enda lítið gaman að vera á ferðinni þar sem það var þriggja daga helgi hér og í dag eru margir á heimferð. Við skruppum hitt og annað í gær samt og í nágranna bæ þar sem við fórum til að kaupa okkur ís hitti ég konu frá Filippseyjum sem ég hitti nokkru sinnum fyrir ábyggilega 3 árum síðan. Þá var vonlaust að tala við hana þar sem hún talaði nokkur orð í ensku og kannski 5 orð í Ítölsku. En þegar hún sá mig að þá stökk hún á mig og ég hélt ég kæmist ekki í burtu hún talaði út í eitt en ég skildi sama og ekkert þar sem hún er ennþá með sömu kunnáttu og fyrir þessum árum. Bara óþægilegt !! 

Annars er ekki mikið að gerast allt bara þetta same old same old....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband