Færsluflokkur: Bloggar

Eru ísbirnir á Íslandi ??

Þessa spurningu fékk ég frá kennaranum í morgun. Ég held svei mér þá að hún haldi að allir búi í snjóhúsum og það sé allt í ís á Íslandi. Smile En annars var morguninn fínn ég var ein með nýjum kennara í 2 tíma og líst mér mjög vel á hana. Svo mátti ég ráða hvort ég léti það duga eða hvort ég myndi fara inn í bekk ( hjá kennaranum sem ég var hjá síðustu tvær vikur) þar sem ertu tveir nemendur sem byrjuðu í morgun bara til að vera í upprifjun og spjalla og svoleiðis. Ég náttúrlega tók það að vera í tímunum enda er um að gera að nota þessar 4 vikur vel þar sem þetta er ekki beint ókeypis! En já þessir nýju nemar eru stelpa frá Austurríki og strákur frá Sri Lanka, hann er reyndar bara í viku held ég þannig að kannski breytast tímarnir aftur í næstu viku en þessi vika verður allavega mjög fín.

....

Það var frábært veður í dag !! Í San Marino það er að segja, því að hér var rigning og þoka. Ég stefni á að fara þarna aftur jafnvel um næstu helgi því þá opnar jólamarkaður og mig langar líka að vera þarna seinni part dags til að sjá öll jólaljósin. Smile San Marino

Ehemm....

Vaknaði snemma í morgun þar sem við vorum búin að ákveða að fara til San Marino og sjá hvort það væri ekki komin jólastemming og jafnvel athuga hvort það væri hægt að kaupa einhverjar gjafir. Við fórum þangað og löbbuðum mikið enda var frábært veður en hvað jólainnkaup snertir að þá keypti ég smá hlut handa henni litlu systir en þá er það upptalið.Blush En aftur á móti keypti ég mér smávegis, ég bara gat ekki staðist það að kaupa fyrstu seríuna af Fame ! Maður horfði á þetta í hverri viku hér í denn og það var heilög stund.Tounge En semsagt jólainnkaup bíða bara næstu helgar ég vil helst ekki bíða mikið lengur þar sem það tekur tíma að senda á milli landa.

Jamm og já.

Þá er enn ein helgin runnin upp. Ég veit ennþá ekki hverning skólinn hjá mér verður á mánudaginn, það koma víst einhverjir nýjir nemendur en ég veit ekki hvort ég verð sett með þeim eða verð ein með kennara. Það var semsagt síðasti dagurinn hjá Þjóðverjanum í gær og eftir skólann fórum við 3 ( ég, kennarinn og hann) á kaffihús í smá stund. Það var fínt bara, ég uppgötvaði þar þetta fína kaffihús/bar rétt hjá skólanum. Annars er allt við það sama ég er að reyna að komast í jólagjafagír en það gengur brösuglega ennþá. Woundering Er alveg hugmyndasnauð í þeim efnum !!

Fimmtudagur.

Þá er bara eftir einn skóladagur í þessari viku, og í dag komst ég að því að ég er þriðji Íslendingurinn sem þau fá í skólann. Annars er ekkert að gerast nema ég þurfti að skauta í rútuna í dag. Það var smá rigning og aðalgatan er öll gerð úr litlum hellum og úff hvað þær eru hálar í bleytu !!!! Ég flaug næstum því á hausinn fyrir framan slatta af fólki. Blush En það var ekkert bara ég sem var eins og belja á svelli, ég sá einn endastingast á hjóli enda ekki beint hjólavænt í dag. En allavega er farin að læra ....já það er heimanám á hverjum degi sko. Wink

Akkuru....

Voru það ekki rassálfarnir í Ronju sem sögðu alltaf akkuru, akkuru ?? Woundering Amma gamla er að gera mig gráhærða þessa dagana því að mörgu sinnum á dag er af hverju þetta og af hverju hitt.

Af hverju ferðu með rútunni í skólann en ekki Geithafrinum ? er búið að koma mööööörgu sinnum. Hún skilur engan veginn að hann byrjar fyrr en ég og ef ég færi með honum yrði ég að bíða í meira en klukkutíma eftir að skólinn byrjaði.

Af hverju kom hann heim í mat á undan þér ?    Það var aðalspurningin í gær þar sem hann kom heim sem hann gerir ekki oft, en ef hann hefði beðið eftir mér hefði hann verið búinn í mat þegar hann kom heim.                                                                                   

Af hverju tekurðu rútuna þarna ?    Ég tek hana bara þar sem mér finnst þægilegast !!                                                                                                       

Af hverju ferðu úr rútunni þarna ?   Ég fer úr á mismunandi stöðum, þar sem hentar hverju sinni stundum við búðina ef ég þarf að kaupa eitthvað til dæmis og stundum í miðbænum, það er álíka langt að labba heim.                                                                                                         

Af hverju er ekki meiri þvottur til að strauja ? Ert þú farin að strauja sjálf sagði hún í gær og hvessti á mig augunum. Nei ég er það nú ekki en það er samt ekki meiri þvottur sagði ég. Ekki var hún ánægði og ég fékk langan fyrirlestur um það hvað straukonan straujaði vel. Ég veit það alveg en það spratt ekkert upp meiri þvottur þótt hún vildi.    

Þetta eru bara nokkur dæmi. Stundum er ég bara ekki alveg stemmd fyrir sömu spurningunni á hverju degi !!                                                                          


.................

Var búin að skrifa slatta og ýtti þá á vitlausan takka þar sem allt hvarf. Devil  En allavega skólinn er fínn, allavega líður tíminn svo hratt þar að maður er varla mættur þegar hann er búinn. Líklega þýðir það að það sé gaman. Wink  Það er líka fínt að vera bara tvö í bekk en ég veit ekki ennþá hvernig næstu vikur verða, hvort ég verð ein eða hvað. Langar helst ekki að vera ein, en það skýrist þegar nær dregur.

En annars gerist ekki mikið hér, ég reyndar hélt að rútan færi ekki heim í dag þar sem að það brutust út slagsmál á milli þriggja stráka um leið og rútan var að fara.Þvílík læti og heift sem var í gangi. En eftir að vagnstjórinn var búinn að henda tveimur út að þá var haldið áfram. Semsagt bara fjör hér á bæ. Smile


Óvenjuleg Pizza.

Gærdagurinn var frekar rólegur hér á bæ. Skruppum í morgunmat til Casalborsetti og fórum svo til Ravenna að kaupa nokkur slúðurblöð. Ég hef nú ekki mikið verið að kaupa af blöðum hér enda er ég vön því að heiman að kaupa þau ekki þar sem þau eru svo dýr. Shocking En hér get ég sko keypt þar sem þau kosta flest ( slúðurblöðin ) um eina til tvær evrur. Endaði á að kaupa þrjú og borgaði reyndar 10 evrur þar sem eitt var með geisladisk með og var þar af leiðandi dýrara.  Eyddi semsagt deginum í lestur. Smile En í gærkvöldi fórum við í annan bæ þar sem Geithafurinn hafði bókað borð á veitingastað sem sérhæfir sig í grilluðu lambakjöti en er líka með pizzur. Hann fékk sér kjöt en ég ákvað að fá mér pizzu og þegar ég fór að lesa matseðilinn var ein sem skar sig úr hún var með grilluðu lambakjöti og kartöflum svo ég ákvað að prufa. Og þvílík snilld !!! Ég hefði aldrei trúað því að þetta væri svona gott !! Ég er sko ákveðin í að fara þarna aftur við tækifæri því að þetta vil ég smakka aftur.Smile

Leti.

Nenni ekki með nokkru móti að klára heimalærdóminn í dag !! En það kemur í bakið á mér á morgun því að þá verð ég að klára það sem liggur fyrir. Woundering  Skrapp reyndar til Ravenna í dag þar sem við fórum í búð sem selur malt, mig langað svo skelfilega í svoleiðis, ég fer reyndar rétt þarna hjá á hverjum degi en búðin er alltaf lokuð þegar ég fer heim þannig að við fórum seinnipartinn í dag. Þarna eru til margar gerðir og nokkrar bara þræl góðar þótt Egils sé náttúrlega alltaf best !! Er búin að finna Danskt, Nígerískt, og Indverskt meðal annars sem eru góð. Ég reyndar kaupi ekki meira af þessu Indverska þar sem ein flaska af því kostar 2.60 Evrur og mér finnst það einum of !!

En annars er veturinn komin hingað !! Í fréttunum í kvöld var sýnt að sumstaðar snjóar hér í kring en það spáir reyndar ekki snjó hér en það er svoooo kalt !!!  Ekki oft sem ég gæti hugsað mér að ganga í pels en það hefði verið fínt að hafa svoleiðis í hundagöngunni áðan. Woundering


Föstudagur.

Það var ekkert smá erfitt að fara á fætur í morgun. Mig langaði svo mikið að snúa mér á hina hliðina og sofa lengur en það var ekki í boði. En það ætla ég sko að gera á morgun, það verður meira en ljúft að þurfa ekki að vakna korter yfir 6. W00t  En í dag var seinasti dagur hjá þeim Austurríska þannig að næstu viku verðum við bara 2 í bekk semsagt ég og Þjóðverjinn sem er nokkuð góður. Hann hefur einhvern þann mesta hrossahlátur sem ég hef heyrt á ævinni og er alltaf hress þannig að þetta verður fínt. Ég er samt að vona að það bætist við nemendur í vikunni þar á eftir svo að ég verði ekki ein eftir þegar hann fer.Woundering

Annars er ekkert að gerast dagarnir þjóta hjá og það er farið að setja upp jólaskreytingar reyndar aðallega hjá fyrirtækjum en ég er samt búin að sjá í einu húsi og væri alveg til í að skella upp seríu um helgina en ehmmm Geithafurinn er ekki sammála mér í þeim efnum !! Spurning hvort ég skelli henni ekki bara upp á mánudaginn þegar hann er að vinna þá getur hann ekkert sagt. Tounge

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband