21.3.2008 | 16:24
Hitt og annað.
Ég held ég sé nú loksins að skríða saman þótt ég sé alls ekki orðin góð en ég tek það bara rólega í nokkra daga ennþá og get þá vonandi farið að vera smá á ferðinni. Ég varð annars ekki mjög glöð í nótt þegar ég fór fram að fá mér heitt að drekka við hóstanum. Hverju mætti ég ??? Jú þessari risa stóru svörtu könguló ég var að hugsa um að vekja Geithafurinn og láta hann bjarga mér en svo sá ég þessa fínu glerkrukku sem ég bara skellti yfir dýrið þannig ég gat drukkið í friði. Lét svo bara Geithafurinn setja hana út í morgun því það var ekki sjens að ég myndi snerta þetta flykki !!
Við ætluðum að vera voða sniðug áðan þar sem Geithafurinn var í fríi eftir hádegið ( það var svo lítið að gera að allir fengu frí) og fara að versla inn til að losna við allt kaðrakið á morgun þegar við komum að búðinni að þá mættum við bara fólki með tómar körfur sem er frekar mikið óvenjulegt !! En við fórum inn að athuga málið og þá var verkfall. Litlar einkabúðir eru opnar en allar stærri matvörubúðir lokaðar þannig að við verðum að fara á morgun ef við ætlum að eiga eitthvað að borða um páskana þar sem það er farið að verða ansi lítið til á heimilinu þar sem allir hafa verið veikir innandyra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.3.2008 | 13:32
Já það er fjör.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.3.2008 | 15:35
Læknaheimsókn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.3.2008 | 09:47
Hvað er í gangi !!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2008 | 11:02
Í belg og biðu.
Er eitthvað hálf asnaleg í eins og er. Svaf illa í nótt og ákvað að leggja mig aftur þegar Geithafurinn var farinn í vinnuna og var rétt sofnuð þegar ég heyri kallað Ólöf og auðvitað hrökk ég upp. En málið er að það var enginn þarna, þar sem ég var ein á efri hæðinni og sú gamla niðri kallar mig alltaf Alí. En allavega eftir þetta að þá gat ég auðvitað ekkert sofnað aftur. Þannig að ég náttúrlega fór bara á fætur og ákvað að fara út í búð, sem var ekki góð ákvörðun !! Ég hélt ég myndi halda páskana þar....það var eins og það yrði bara ekkert opið nema í dag og svo lokað það var þvílík stappa af fólki að ég rétt henti einhverju smá í körfu og fór á kassann. En það er nú ekki eins og það sé ekkert opið sko því hér er allt opið nema á Páskadag og annan í páskum. En annars er þvílíkt gott veður og reyndar mjög gott að fá sér gönguferð í búðina en ég held að ég reyni að klára innkaup á morgun fyrir alla næstu viku því ég er ekki að nenna að vera í svona stappi sem á bara eftir að aukast á næstu dögum.
Annars er frekar skrítinn dagur þar sem það er afmælisdagurinn hennar ömmu og það er frekar skrítið að geta ekki tekið upp tólið og hringt í hana !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.3.2008 | 15:52
Jamm og jæja.
Hér er svo sannarlega vor í lofti ! Enda er allt að vakna til lífsins, skjaldbakan í næsta garði er vöknuð og ég verð að segja að ég sakna þess að hafa ekki skjaldbökurnar hér í garðinum en þær voru settar annað vegna þessa að það er búið að vera að vinna í garðinum og á eftir að gera meira. Ætla bara rétt að vona að þetta haldist eitthvað áfram.
En annars er nóg að snúast hjá mér alla vegana þar sem ég fann mér nýtt áhugamál sem tekur soldinn tíma en annars er allt við það sama. Sú gamla gerir mann gráhærðan reglulega og eins og staðan er núna má segja að ég sé í góðri æfingu að telja upp á 100 !!! Ég varð til dæmis ekki mjög glöð í gær þegar ég setti í þvottavélina og hvíti þvotturinn kom út loðinn og svartur. Þá hafði sú gamla verið að þvo stóra hunda mottu og þótt það sé búið að biðja hana um að láta þetta ekki í vélina ( er allt of stórt ) eða allavega að láta þá vélina þvo tóma á eftir að þá er það aldrei gert. Ef þetta væri hennar vél að þá væri allt í góðu og ekkert hægt að segja en hennar gaf upp öndina fyrir löngu síðan og hún ákvað að kaupa ekkert aðra heldur nota bara þessa frá efri hæðinni. Semsagt líf og fjör hér eins og venjulega.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.3.2008 | 15:21
.........
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.3.2008 | 21:34
Laugardagur....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.3.2008 | 15:18
Nú er það snúið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.3.2008 | 20:53
Pifffff.
Er að glápa á Doktor House á Ítölsku og get ekki sagt að mér finnist það mjög spennandi...kann engan vegin við að horfa á talsettar seríur. Er nefnilega ekki með sky afruglarann hann er í stofunni eins og er og það eru þrír kallar í stofunni að horfa á tuðruspark.
Annars er ekki mikið að gerast það er búið að vera þvílíkt gott veður síðustu daga en í dag rok og rigning. Það er allt að lifna við og froskarnir eru farnir að vera á vappi. Ég mætti einum stórum í hundagöngunni áðan. Stoppaði og tók hann upp og var að hugsa um að fara með hann heim en hætti við og sleppti honum aftur. Ætla samt með mynda vélina með mér á morgun þar sem mig langar í froskamynd, ég hlýt að rekast á fleiri á næstunni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)