26.10.2008 | 20:39
Bleah.
Hef ekki mikið að segja eins og er. Nákvæmlega ekkert að gerast hér. Fórum reyndar í mat til gömlu hjónanna í gær og þar var náttúrlega reynt að troða í mann endalaust. Síðan var bara garðvinna og solleiðs enda var fínt að komast aðeins út eftir að vera inni með flensu en auðvitað er ég með óteljandi flugnabit eftir það
. Dagurinn í dag var tekinn snemma var komin á fætur fyrir 8 (hefði allajafna verið 9 en klukkunni var breytt síðustu nótt) byrjuðum á að fara í morgunmat a barinn og síðan var farið í smá búðarferð. Vorum komin að búðinni rétt fyrir opnun og ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum þegar ég sá allt fólkið sem var farið að bíða í röðum fyrir utan. Hélt að ég yrði þarna í dag en allt hafðist þetta nú og bara nokkuð fljótt á miðað við fjöldann. En allavega meira síðar.....
Athugasemdir
það er óþolandi þegar fólk reynir alltaf að troða í meira mann, maður má segja nei!
Jóna Heiðdís Guðmundsdóttir, 29.10.2008 kl. 12:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.