21.7.2008 | 13:58
Meiri leti.
Mikið skelfing var ljúft að þurfa ekki að fara út rúmlega 6 í morgun eins og venjulega. Það var þvílík rigning og ég naut þess að geta snúið mér á hina hliðina og sofið dálítið meira. Fínt að fá tveggja daga frí núna og letipúkast. Það var reyndar mjög fín þessi vinnuhelgi og bara nokkuð róleg á miðað við oft. Það fer svo mikið eftir því hverjum maður er að vinna með hvort það er alltaf stress og læti eða bara hvort allt gengur rólega fyrir sig. Á svo bara eftir að vinna þrjár helgar sem er bara frábært !!!
Athugasemdir
Það er alltaf gott að vera í fríi, þess vegna fór ég í skóla, svo ég fengi sumarfrí svona eins og Lína Langsokkur. Er farið að styttast í dvölinni á Fróni? Mig langar allavega að fá mér einn kaffibolla með þér þó það væri ekki meira. Hvenær eru næst í fríi?
Hafðu það sem best í rigningunni
Jóna Heiðdís Guðmundsdóttir, 21.7.2008 kl. 21:28
Já við verðum að fara að hittast. Ég sendi þér póst.
Ólöf , 22.7.2008 kl. 13:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.