12.4.2008 | 19:52
Eins og sprungin blaðra !
Er þannig í dag. Spurning hvort það sé eftir gærkvöldið en við fórum út að borða á stað sem við höfum aldrei farið á áður. Það var hægt að fá allskonar mat fisk, kjöt, pizzur og ég var að pæla í að fá mér pizzu en Geithafurinn stakk upp á að ég myndi nú prufa eitthvað annað svona til tilbreytingar. Ég ákvað að gera það og fékk mér pasta fyllt með sveppum í forrétt og lambakjöt í aðalrétt. Ég fæ pastað og það er fyllt með sveppum en er í kjötsósu ( á matseðli var ekki sagt að það væri sósa ) sem mér fannst nú ekkert spes enda var frekar sérstakt bragð af henni. Geithafurinn smakkaði og var frekar skrítinn á svipinn og sagði lítið, nema bara finnst þér þetta gott ? Já já þetta er ágætt sagði ég og kláraði af disknum. Ég hélt að þetta væri bara venjuleg kjötsósa úr svínahakki eins og er yfirleitt hér en nei uppistaðan var svínalifur. Sem betur fer komst ég ekki að því fyrr en ég var komin heim !! Ég sem borða ekki lifur í neinni mynd !! Hér eftir fæ ég mér pizzu ef ég fer eitthvað út að borða.
Dagurinn í dag hefur einhvernvegin orðið að engu, skrapp reyndar til Ravenna að kaupa mér malt. Mig er búið að langa í malt í marga daga og þótt Egils sé alltaf best að þá er það sem fæst hér alveg þrælgott !! En það sossum styttist í að ég geti fengið mér Egils malt og Egils kristal...slurp hvað mig langar í svoleiðis !!
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.