11.4.2008 | 10:02
Atjú og grátur !
Þannig er ástandið hér þessa dagana ! Ég er semsagt með ofnæmi á háu stigi eins og er, enda er allt að springa út. Spurning hvað fólk hér í þorpinu heldur þegar ég er alltaf að þerra tár úti á götu.
Annars er allt í nokkuð góðum gír og ekki mikið að gerast. Amma gamla hefur ekki talað við mig í nokkra daga því að það kom upp enn eitt vesen með þvott og Geithafurinn talaði við hana og svo hún við mig daginn eftir því hún vill alltaf að ég sé á sama máli og hún en í þetta sinn var ég það ekki !! Og sú gamla móðgaðist heldur betur þegar ég svaraði henni, hún fór inn til sín og lokaði á eftir sér og hefur ekki talað orð við mig síðan.
Hef bara sama og ekkert farið undanfarið skrapp reyndar til Ravenna með rútunni í gærkvöldi og hitti Geithafurinn á lestarstöðinni og við fórum að versla. En úff hvað mér er illa við að taka rúturnar hér, ég er nú ekkert ofsalega bílhrædd en í þessum rútuferðum þá er ég sko bílhrædd!! Í gær munaði hársbreidd að einn keyrði inni í hliðina á rútunni og svo munaði hársbreidd að rútan keyrði niður hjólreiðamann. Og þetta er fyrir utan hringtorgin sem farin eru sem eru alveg kafli út af fyrir sig.
En læt þetta duga í bili...Ciao
P.S. Steini þetta var gert bara fyrir þig.
Athugasemdir
Æææ það er verra að vera sígrátandi og hnerrandi. Ég fór í göngu í dag og það var voða fallegt gluggaveður en ég var ekki mikið vör við að eitthvað væri farið að lifna ef það lifnar þá fýkur það örugglega burt. En það er allt orðið bjartara og þar með betra. Vona að ofnæmið láti sig hverfa og hafðu það sem best.
Jóna Heiðdís Guðmundsdóttir, 11.4.2008 kl. 17:27
Æ hvað það er nú gott að tekið sé mark á því sem maður segir :) vertu svo dugleg að blogga þannig að ekki þurfi að skamma þig oftar fyrir bloggleti ;)
Steini (IP-tala skráð) 11.4.2008 kl. 22:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.