Leti !

Bara leti í gangi í dag. Ég ákvað samt að vera voða hress áðan og fara í smá göngu þar sem ég þurfti að fara í tvær búðir. En þegar ég kom að matvörubúðinni var allt lokað vegna vörutalningar þannig að þetta verður bara að bíða til morguns en ég allavega fékk ágætis gönguferð í góða veðrinu. FootinMouth   Verð samt ábyggilega að fara einhverjar krókaleiðir í búð á morgun þar sem það er verið að grafa upp götuna. Það á eitthvað að fara að gera við vatnslagnir því við fengum bréf um að það verður allt vatnslaust á morgun frá 9 til 3....semsagt mikið fjör. Gat samt ekki annað en brosað þegar ég las bréfið því það er ps í endann sem segir að ef eitthvað sé að veðri (rigning) að þá verður viðgerð frestað. Er ekki alveg viss um að það myndi gera sig á klakanum.Wink

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Heiðdís Guðmundsdóttir

Jaá bara frestað vegna veðurs sæi það gerast hér.  En sendu mér nú smá vor og ég skal senda þér smá vatn, góð skipti ha

kveðja

Jóna Heiðdís Guðmundsdóttir, 1.4.2008 kl. 21:00

2 Smámynd: Ólöf

Þú mátt alveg hafa vatnið en ég skal samt senda þér smá vor...skal skella því í póst í fyrramálið.

Ólöf , 1.4.2008 kl. 21:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband