Punktar....

...Hef ekki verið í miklu bloggstuði undanfarið enda hefur bara verið nóg að snúast fyrst ég er loksins laus við flensuna.Tounge

... Hundspottið er reyndar ekki alveg nógu hresst, mér leist ekki á blikuna þegar ég koma heim einn daginn í vikunni þá skalf hann allur og var draghaltur þannig að það var brunað til dýra þegar Geithafurinn kom heim. Hundurinn var greindur með gigt og nú hef ég það skemmtilega verk að koma í hann tveimur töflum á hverjum degi.

...Í nótt var tímanum breytt þannig að núna er ég tveimur tímum á undan.

... Amma gamla er öll klambúleruð á fæti þar sem hún var að bambrast með 12 lítra af vatni niður nokkrar tröppur og datt.

... Ég held það sé farið að vora þar sem það er þvílíkt gott veður hér á daginn, enda er allt að lifna við. Er farin að mæta litlu salamöndrunum á tröppunum. Bara sætt sko.InLove

... En annars er bara allt í góðum gír, ég er bara fengin að geta stundað nýja áhugamálið mitt aftur og er það bara gaman þar sem ég er búin að hitta slatta af nýju fólki.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Heiðdís Guðmundsdóttir

Gott að sjá að þú er komin aftur.  Væri í til smá vor hingað, það er um frostmark og rok, ekkert frábært veður, en ´Lóan er komin svo að bráðum kemur betri tíð með blóm í haga

Knús

Jóna Heiðdís Guðmundsdóttir, 30.3.2008 kl. 19:35

2 identicon

Fjúff, gott að sjá færslu frá þér  Vonandi braggast amman sem fyrst og gott að þú ert orðin góð (ekki það að þú hafir verið slæm hehehehehe.... )

Sigrún (IP-tala skráð) 30.3.2008 kl. 22:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband