Leti !

Er skelfilega löt í dag og er að hugsa um að geyma bara allt til morguns sem ég ætlaði að gera í dag. Wink Reyndar er ekkert af þessu nauðsynlegt þannig að þetta er alveg á góður róli. Er bara eitthvað skelfilega andlaus og nenni ákkurat engu.

Skrapp nú samt út að borða með henni Önnu í gærkvöldi. Smile Held svei mér þá að ég sé ennþá södd enda ultum við næstum því út af staðnum. Við vorum reyndar eitthvað voðalega ónýtar og höfðum ekki einu sinni orku í að panta eftirrétt. Woundering


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú getur þá bara komið í kaffi í tjarnahverfið  Ég er heima !

Sigrún (IP-tala skráð) 2.10.2007 kl. 12:06

2 Smámynd: Ólöf

Takk fyrir það Sigrún.  Verð að eiga það inni fékk nefninlega nennið yfir mig og er búin að vera á 100 í allan dag að klára lausa enda.

Ólöf , 2.10.2007 kl. 18:45

3 identicon

Ekki málið, gott fólk alltaf velkomið til mín  Gott hjá þér að finna nennið.

Sigrún (IP-tala skráð) 2.10.2007 kl. 22:25

4 Smámynd: Saumakonan

hah! þú fannst örugglega MITT nenn!!!     Varð eitthvað allt í einu all svakalega orkulaus og hreinlega nenni ekki neinu í dag!    Sökudólgurinn fundinn!!!

Saumakonan, 3.10.2007 kl. 13:37

5 Smámynd: Ólöf

Hehehe já það gæti alveg verið. Fínt að fá svona auka nenn stundum en ég skal skila því aftur fljótlega.

Ólöf , 3.10.2007 kl. 17:09

6 Smámynd: Jóna Heiðdís Guðmundsdóttir

Mikið rosalega er tíminn fljótur að líða, ég sem ætlaði að bjóða þér í mat áður en þú færir út og fannst ég hafa bara nógan tíma.  En ég býð þér bara næst þegar þú kemur.  Hafðu það sem best og góða ferð út. Knús

Jóna Heiðdís Guðmundsdóttir, 5.10.2007 kl. 07:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband